Pregame Studio

Skilmálar

Þessir skilmálar gilda um prufuaðgang og áskrift að Pregame Studio og Pregame Arena (hér eftir „hugbúnaðurinn“), sem Beisik ehf., kt. 440402-2750 (hér eftir „Beisik“), á og rekur. Með því að sækja um prufuaðgang, skrá þig inn eða nota hugbúnaðinn samþykkir þú skilmálana, fyrir þína hönd og fyrir hönd þess félags eða fyrirtækis sem þú kemur fram fyrir.

1. Hugverkaréttindi

Hugbúnaðurinn er hugverkavarinn. Öll réttindi að honum eru í eigu Beisik og njóta verndar höfundalaga nr. 73/1972 og annarra laga um hugverkaréttindi. Það á meðal annars við um frumkóða, hönnun, viðmót, sniðmát, grafík, texta, virkni og uppbyggingu hugbúnaðarins.

Notandi fær einungis tímabundinn og óframseljanlegan rétt til að nota hugbúnaðinn á meðan prufutími eða áskrift varir. Engin eignarréttindi að hugbúnaðinum flytjast til notanda.

2. Bann við afritun

Notandi gerir sér grein fyrir því að hann fær aðgang að hugverkavörðum hugbúnaði og að óheimilt er með öllu að afrita hann, í heild eða að hluta. Án skriflegs samþykkis Beisik er meðal annars óheimilt að:

  • afrita, endurgera eða líkja eftir hugbúnaðinum, hönnun hans, viðmóti, sniðmátum eða virkni
  • þróa eða láta þróa sambærilega lausn á grundvelli þess sem notandi kynnist í hugbúnaðinum
  • bakþýða hugbúnaðinn, taka hann í sundur eða reyna á annan hátt að nálgast frumkóða hans
  • selja, leigja, lána eða veita þriðja aðila aðgang að hugbúnaðinum

3. Aðgangur

Aðgangur er persónubundinn. Notandi ber ábyrgð á að halda innskráningarupplýsingum sínum leyndum og á allri notkun sem fer fram í gegnum aðgang hans.

4. Prufuaðgangur

Prufuaðgangur gildir í 7 daga. Í prufunni er vatnsmerki á öllu efni og ekki hægt að hlaða því niður. Efni úr prufunni má ekki birta opinberlega.

5. Efni notanda

Félagið á áfram þau gögn og það efni sem það setur inn, svo sem merki, myndir, myndbönd og upplýsingar um leikmenn og auglýsendur. Félagið ábyrgist að hafa heimild til að nota efnið og veitir Beisik heimild til að vinna með það eingöngu í þeim tilgangi að veita þjónustuna.

6. Brot á skilmálum

Brjóti notandi gegn skilmálum þessum, einkum 1. og 2. grein, er Beisik heimilt að loka aðgangi hans án fyrirvara. Beisik áskilur sér rétt til að krefjast lögbanns og skaðabóta vegna þess tjóns sem af brotinu hlýst.

7. Persónuupplýsingar

Beisik vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Upplýsingar úr umsókn um prufuaðgang eru eingöngu notaðar til að setja upp aðgang og gera tilboð í áskrift.

8. Breytingar

Beisik getur breytt skilmálunum. Breytingar eru kynntar notendum áður en þær taka gildi.

9. Lög og varnarþing

Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur um þá skal reka málið fyrir íslenskum dómstólum.

Síðast uppfært 21. október 2026.